Þráðlaust hljóðkerfi & hljóðnemar

Description

JBL EON One MK2 er mjög vinsælt hljóðkerfi sem er hannað til að uppfylla allar þarfir viðburða. Þetta hljóðkerfi er búið til með það í huga að vera bæði með framúrskarandi hljómgæði og auðvelt í uppsetningu. 

Hljóðkerfið gengur fyrir rafhlöðum sem duga allt að 6 klukkustundir og því ekkert stress að finna innstungu. Þú setur einfaldlega kerfið upp þar sem þú vilt hafa það. Ef um lengri viðburð er að ræða er ekkert mál að tengja kerfið við rafmagn og halda áfram með viðburðinn þinn. 

Það sem einkennir JBL EON One MK2 er flotti hljómurinn sem dreifist vel. Hátalararnir í kerfinu eru hágæða JBL hátalarar sem nýta nýjustu tækni til að tryggja að hljómurinn sé hreinn og greinilegur.

Hljóðkerfið er búið til með það í huga að vera mjög meðfærilegt og þægilegt í notkun, þannig að það sé auðvelt að taka það með sér hvert sem leiðinni er heitið. Kerfið er líka mjög auðvelt í uppsetningu sem þýðir að þú getur sett það upp á skömmum tíma án þess að þurfa að vera með áratuga reynslu sem hljóðmaður.

Hljóðkerfið er með innbyggðan 6 rása mixer þar af 3 rásir fyrir XLR (hljóðnema snúrur) eða jack (hljóðfærasnúrur), ein stök jack og svo mini jack eða bluetooth rás sem gerir þér kleift að tengja flestan búnað við kerfið. Í mixernum eru einnig effectar þ.a.m. Delay og Reverb.

Þetta hljóðkerfi er fullkomið fyrir 100 manna viðburð.

Erfiðleikastig búnaðar: Auðvelt