Þegar kemur að því að halda veislu – hvort sem það er afmæli, brúðkaup, útihátíð eða bara vinalegur kvöldverður með tónlist – þá skiptir máli að velja rétt hljóðkerfi fyrir fjölda gesta og aðstæður. Of lítið kerfi nær ekki yfir salinn, en of stórt getur verið bæði dýrt og flókið í notkun.
Hjá EasyEvent er allur búnaður hugsaður út frá einfaldleika – þannig að hver sem er getur sett hann upp án tæknikunnáttu. Við leggjum mikla áherslu á að öll kerfi séu flytjanleg í fólksbíl – jafnvel þau sem gefa frá sér kraft og gæði á við kerfi sem oft þarf að flytja með sendiferðabíl. Þannig tryggjum við að þú getir einbeitt þér að veislunni sjálfri, ekki flækjunni.
Hér er fljótleg yfirsýn yfir hvaða kerfi hentar best – hvort sem þú vilt eitthvað batteríkeyrt og meðfærilegt eða kerfi sem skilar djúpum bassa og háum gæðum á stóra gólfinu.
Leiðarvísir að réttu hljóðkerfi
Hljóðkerfi | Fjöldi gesta | Hentar fyrir |
---|---|---|
Soundboks GO | 10–25 | Innipartý, útilegur |
Soundboks Gen 3 / 4 | 20–60 | Gæsanir, grillveislur |
2x Soundboks | 50–100 | Heimapartý, minni útihátíðir |
JBL EON ONE MK2 | 30–70 | Brúðkaupsathafnir, veislur |
JBL PRX ONE (1) | 70–150 | Brúðkaup, tónleikar, dans |
JBL PRX ONE (2x) | 150–300 | Árshátíðir, stærri viðburðir |
Nánari lýsingar á hljóðkerfunum okkar
🎉 Soundboks kerfi – fyrir einfaldar en kraftmiklar veislur
🔊 Soundboks GO
- Fjöldi gesta: 10–25 manns
- Hentar fyrir: Litlar samkomur, útilegur, grillpartý og innipartý
- Athugið: Léttur og meðfærilegur, gengur fyrir rafhlöðu. Ekki bassamikill en hentar vel í minni rými og innandyra.
🔊 Soundboks Gen 3 / Gen 4 (sambærileg í afli)
- Fjöldi gesta: 20–60 manns
- Hentar fyrir: Gæsanir, afmæli, útihátíðir, heimapartý
- Athugið: Gífurlega hávær og þolir mikla notkun utandyra. Með góðum bassa og rafhlöðuendingu.
🔊 2x Soundboks (t.d. Gen 3 + Gen 4)
- Fjöldi gesta: 50–100 manns
- Hentar fyrir: Stærri heimapartý, grillveislur, minni viðburði utandyra
- Athugið: Tengjast saman með SKAA eða Bluetooth fyrir víðari og sterkari hljóm.
🔈 JBL kerfi – fyrir stærri viðburði með meiri nákvæmni og hærri hljómgæða kröfur
🎵 JBL EON ONE MK2
- Fjöldi gesta: 30–70 manns
- Hentar fyrir: Litla tónleika, veislur í sal, brúðkaupsathafnir
- Athugið: Allt í einu hljóðkerfi með góðum hljómi, innbyggðum mixer og rafhlöðu – því má nota án rafmagns. Auðvelt í notkun og flytjanlegt.
🎶 JBL PRX ONE (1 stk)
- Fjöldi gesta: 70–150 manns
- Hentar fyrir: Brúðkaup, dansleiki, litla tónleika, ráðstefnur
- Athugið: Öflugara kerfi með meiri dýpt og bassi. Með innbyggðum mixer og fjölbreyttum tengimöguleikum. Mikilvægur kostur ef verið er að spila dansvæna tónlist.
🎶 JBL PRX ONE (2 stk samtengd)
- Fjöldi gesta: 150–300 manns
- Hentar fyrir: Stærri veislur, brúðkaupsveislur með dansi, árshátíðir, tónlistarviðburðir
- Athugið: Fullkomið fyrir hátíðir þar sem bæði þarf kraft og hljómgæði. Með innbyggðum mixer og fjölbreyttum tengimöguleikum. Samtenging gerir ráð fyrir jafnvægi í stærri rýmum.
Þarf ekki að vera flókið – bara skemmtilegt 🎉
Við hjá EasyEvent leggjum metnað í að gera hljóðkerfisleigu eins einfalda og þægilega og mögulegt er. Öll kerfin okkar eru valin með það í huga að jafnvel óvanir notendur geti sett þau upp sjálfir – án tæknikunnáttu, án snúrufrumskóga og án stress.
Þrátt fyrir einfaldleikann skilar búnaðurinn háum gæðum og miklu afli – og það besta er að allt kemst í venjulegan fólksbíl. Þú þarft ekki að panta sendiferðabíl eða fá hljóðmann – bara smella, tengja og spila.
Ef þú ert ekki viss hvaða kerfi hentar þér best, sendu okkur línu – við finnum réttu lausnina fyrir þitt teiti 🥳