Upptaka & streymi – Leiðarvísir frá EasyEvent

Hvernig skal streyma úr Mevo Multicam appinu – Leiðarvísir frá EasyEvent

Ef þú ert að leita að einfaldri og notendavænni leið til að streyma beint á netið, þá er streymipakkinn frá EasyEvent frábær lausn. 

Með honum fylgja þrjár Mevo Start myndavélar, iPad, þráðlaus hljóðnemi og öflugur 4G router sem heldur öllu kerfinu tengdu – jafnvel þar sem engin Wi-Fi tenging er til staðar.


1. Tenging og undirbúningur

Allar myndavélarnar og iPadinn tengjast saman í gegnum TP-Link router sem er með innbyggðu SIM korti. Routerinn myndar lokað Wi-Fi net sem tryggir stöðuga tengingu og streymi.

Mikilvægt:

  • Routerinn þarf að vera staðsettur þar sem símasamband er sterkt (4G). Þú getur prófað að opna vefsíðu í iPadnum á meðan hann er tengdur við routerinn til að tryggja að nettenging virki á viðburðarstaðnum.
  • Router skal ekki vera lengra en 30 metrar frá neinni myndavél.
  • Gakktu úr skugga um að allar myndavélar og iPadinn séu tengd við sama 5ghz Wi-Fi netið (sem routerinn býr til).

2. Uppsetning myndavéla

Í pakkanum eru 3 Mevo Start myndavélar, allar með hágæða mynd og innbyggðum hljóðnemum. Þær má staðsetja víðsvegar um rýmið, t.d.:

  • Ein beint á svið eða ræðumann.
  • Ein til hliðar til að fá öðruvísi sjónarhorn.
  • Ein aftarlega til að fanga stemminguna eða salinn í heild.

Notaðu meðfylgjandi þrífætur eða festingar eftir þörfum – mikilvægt er að vélarnar standi stöðugar og séu innan við 30 m frá router.


3. Hljóð – skýr og örugg upptaka

Þó að hægt sé að nota innbyggða hljóðnemana í Mevo myndavélunum, þá fylgir með SmallRig þráðlaus hljóðnemi sem tryggir miklu betri og nákvæmari hljóðgæði.

Best er að tengja hljóðnemann við eina af myndavélunum – þá sem er næst prestinum, ræðumanninum eða aðalviðmælanda – og festa sendinn beint á þann sem talar.

Mundu að fjarlægja hljóðnemann og slökkva á honum eftir útsendingu.


4. Streymið sjálft – virkni og framkvæmd

  • Opnaðu Mevo Multicam appið á iPadnum.
  • Veldu “Live” og ýttu svo á go live.
  • Best er að virkja Streymið  a.m.k. 15 mínútum fyrir viðburðinn.
    Þá fer það sjálfkrafa í loftið á YouTube-link sem starfsfólk EasyEvent hefur stillt fyrirfram og sent þér.

Mikilvægt:

  • Lokaðu öllum öðrum öppum á iPadnum áður en streymi hefst.
  • Ekki fara úr Mevo Multicam appinu á meðan á útsendingu stendur, því það getur rofið tengingar eða stöðvað streymið.

5. Á meðan á útsendingu stendur

  • Skiptu á milli myndavéla í appinu með því að snerta þá myndavél sem þú villt að fari í loftið.
  • Fylgstu með tengingu og hljóðinntaki frá þráðlausa hljóðnemanum.
  • Ekki tengja bluetooth heyrnatól við ipadinn, það getur ruglað forritið, best að hlusta á hljóðið með heyratólum sem eru beintengd við ipadinn.

6. Að ganga frá eftir viðburð

  • Ýttu á “End Stream” í appinu til að ljúka streymi.
  • Slökktu á öllum tækjum (iPad, myndavélum, router, hljóðnema).
  • Gakktu úr skugga um að allir fylgihlutir (snúrur, festingar, hljóðnemi o.fl.) séu komnir aftur í töskuna.
  • Mundu að sækja hljóðnemann af þeim sem bar hann .

Mevo Multicam lausnin frá EasyEvent sameinar einfaldleika og fagmennsku. Hvort sem þú ert að streyma brúðkaupi, útför, ræðu eða tónleikum, þá er þessi lausn einföld og þæginleg í notkun.

Ef þú þarft leiðsögn ekki hika við að hafa samband.

Velkomin í streymið – með EasyEvent.