Active DI Box

Description

DI box er notaður til að tengja hljóðfæri, fartölvur eða önnur hljóðtæki við hljóðblandara á einfaldan og öruggan hátt. Hann hjálpar til við að minnka suð og truflanir, sérstaklega þegar nota þarf langa hljóðkapla. Virkar bæði með rafhlöðu eða phantom-afli frá hljóðblandara og hentar því vel fyrir tónleika, ráðstefnur og aðra viðburði.