Hljóðmixer cq18

Description

Allen & Heath CQ18T er öflugur og einstaklega notendavænn digital mixer sem hentar fullkomlega fyrir veislur, brúðkaup, tónleika, ráðstefnur og viðburði þar sem fólk vill fá faglegt hljóð án þess að þurfa að vera hljóðmaður.

Mixerinn er með 18 inn- og útrásir, innbyggt WiFi og stóran snertiskjá sem gerir alla notkun mjög einfalda. CQ18T sér sjálfur um marga flókna hluti eins og feedback suppression, gain assistant og sjálfvirka stillingu á hljóðnemum sem hjálpar mikið þeim sem hafa litla reynslu af mixerum.

Hægt er að stjórna öllum mixernum þráðlaust með iPad sem gerir upplifunina enn þægilegri. Þá getur þú gengið um salinn og stillt hljóðið nákvæmlega þar sem gestirnir standa í stað þess að vera fastur við mixerinn. Þetta er sérstaklega vinsælt fyrir brúðkaup, minni tónleika og viðburði þar sem einfaldleiki og góð hljóðupplifun skipta máli.

Við mælum sérstaklega með að leigja iPad með:
Leigja iPad hjá EasyEvent

Helstu eiginleikar:
• 16 combo XLR/jack inngangar
• 2 stereo inputs
• Innbyggt WiFi fyrir þráðlausa stjórnun
• Snertiskjár á mixer
• Mjög einfalt app fyrir iPad, síma eða tölvu
• Innbyggð effect eins og reverb og delay
• Auto Gain Assistant og Feedback Assistant
• Hægt að tengja stagebox og monitor kerfi
• Frábær lausn fyrir bæði byrjendur og vana notendur

CQ18T er mixer sem gefur mjög faglegt hljóð en heldur notkuninni einfaldri og þægilegri.